Fara í efni

Dagskrá Sæluviku Skagfirðinga 2015

07.04.2015

Sæluvika SkagfirðingaSæluvika Skagfirðinga verður sett sunnudaginn 26. apríl nk. Þessa dagana er verið að vinna í uppsetningu og frágangi á dagskrá Sæluviku 2015 en hún verður send til allra heimila í Skagafirði líkt og fyrri ár.

Ef þú ert með viðburð sem ætti heima í dagskránni er enn mögulegt að bæta við hana en upplýsingar um viðburðina þurfa að berast til Sigfúsar Inga (sigfus@skagafjordur.is) eða Laufeyjar Kristínar (laufey@skagafjordur.is) fyrir kl. 16 á morgun, miðvikudaginn 8. apríl.