Fara í efni

Dagskrá fyrir Hinsegin Hátíð Skagafjarðar 10. - 15. ágúst

13.08.2026
  Íbúar og fyrirtæki eru hvött til að draga hinseginfána að húni á flaggstöngum sínum.    
 
Kl. Viðburður Staðsetning  
Laugardagur, 15. ágúst 2026
10:00 - 11:00 & 11:00-12:00 Kaffi sem vill ekki vera inn í skápnum! Korg Kaffibrennsla, Hýrasta brennsla landsins á Páfastöðum 2. Fagsmökkun á kaffi. Fjölbreytileikinn í bollanum. Panta þarf á viðburð á Korg.is.
11:30 - 22:00 Regnbogamatseðill & hamingjustund á Kaffi Krók Sauðárkrókur Sérstakur regnbogamatseðill og hamingjustund milli 17:00 og 18:00. Sælkerastund með skemmtilega litríku ívafi sem svíkur engan.
13:00-15:00 Hinsegin opnun í Drangey Studio Aðalgata 4 á Sauðárkróki Handlitað garn í regnbogalitum í boði, sem er sérstaklega litað fyrir hátíðina.
14:00 Hátíðardagskrá Kirkjutorg á Sauðárkróki  
 

Gleðiganga frá Safnahúsinu á Kirkjutorg. Skólasamfélagið í Skagafirði stýrir göngunni og heldur uppi stuðinu á meðan á göngunni stendur.

Raggý gleðisprengja keyrri hópinn í gang fyrir gönguna á Faxatorgi.
Sindri Sparkle kynnir dagskrána, Ragga Holm þeytir skífum, Magnús Barðdal sveitarstjóri og Vala Stefánsdóttir fara með hátíðarræður og Ágúst Bryngjarsson lokar hátíðinni með pomp og prakt. 

   
16:00 -21:00 Hinsegin hamingjustund á Sauðá Sauðárkrókur Happy hour frá kl. 16:00 - 18:00 og glæsilegur þriggja rétta hinsegin matseðill. Gleði, gaman og litrík stemmning.
21:00 Uppistand með Sindra Sparkle á Sauðá - ókeypis inn Sauðárkrókur Velkomin í hlátur og góða stemningu á Hinsegin uppistandi á Sauðá. Húmor, glettni og óvænt augnablik.
       
  Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.    
  Nýjustu upplýsingar verður að finna á heimasíðu sveitarfélagsins.    
  Börn eru á ábyrgð foreldra og forráðamanna.