Fara í efni

Dagforeldri vantar í Varmahlíð

01.09.2015

Fjölskylduþjónusta Skagfirðinga leitar eftir samstarfi við aðila sem gæti hugsað sér að  taka börn í daggæslu á einkaheimili í Varmahlíð eða næsta nágrenni.

Dagmæður/dagfeður eru sjálfstætt starfandi verktakar sem taka að sér daggæslu barna á heimili sínu. Félags- og tómstundanefnd veitir starfsleyfi að vissum skilyrðum uppfylltum og Fjölskylduþjónustan annast niðurgreiðslur vistgjalds,veitir dagforeldrum ráðgjöf og stuðning og sinnir eftirliti með starfseminni eins og kveðið er á um í reglugerð félagsmálaráðuneytisins nr. 907 frá árinu 2005. Reglugerðina er að finna hér á heimasíðu sveitarfélagsins  undir Þjónusta - Velferð og fjölskylda -Þjónusta við börn og unglinga - Dagvistun

Áhugasamir hafi samband við Gunnar M. Sandholt sandholt@skagafjordur.is eða Aðalbjörgu Hallmundsdóttur allah@skagafjordur.is eða í síma 455 6000.