Fara í efni

Byggðasafn Skagfirðinga fær viðurkenningu Safnaráðs

27.02.2014

Safnaráð lagði fram tillögu fyrir mennta- og menningarmálaráðherra um viðurkenningu 39 íslenskra safna sem ráðherra hefur samþykkt. Viðurkenningin er ótímabundin og ráðherra getur afturkallað hana að fenginni tillögu safnaráðs, telji ráðið að safnið uppfylli ekki lengur skilyrði viðurkenningar. Viðurkenning Safnaráðs er forsenda þess t.d. að safnið geti sótt um rekstrar- og verkefnastyrki til Safnasjóðs. Viðurkenndum söfnum ber að starfa í samræmi við ákvæði safnalaga og skilyrði reglugerðar um viðurkenningu safna.