Fara í efni

Byggðasafn Skagfirðinga býður öll velkomin í Glaumbæ sunnudaginn 3. desember kl. 16-18!

02.12.2023

Útgáfuhóf bókarinnar Vetrardagur í Glaumbæ og sýningaropnun samnefndrar sýningar verða í Áshúsi þar sem hægt verður að skoða bókina og virða fyrir sér teikningar og málverk eftir Jérémy Pailler.

Þjóðháttaáhugafólk kemur í heimsókn og verður með jólastarfsdag í gamla bænum. Andrúmsloftið í bænum verður eins og við jólaundirbúning árið 1910. Hópurinn verður með kveðskap og sýnir tóvinnu, kertagerð, laufabrauðsútskurð og fleira. Þá munu konurnar í Pilsaþyt gleðja gesti með nærveru sinni og Stjörnukór Tónadans syngur nokkur jólalög.

Smáframleiðendur í Skagafirði verða með jólamarkað og sannur hátíðarbragur yfir svæðinu. Frír aðgangur á safnið á meðan á viðburðinum stendur.