Fara í efni

Byggðasafn Skagfirðinga 75 ára - afmælisfögnuður í Glaumbæ

26.05.2023
Glaumbær

Í tilefni af 75 ára afmæli Byggðasafns Skagfirðinga verður efnt til afmælisfögnuðar og verður safnsvæðið í Glaumbæ fullt af fjöri og skemmtun fyrir allan aldur annan í hvítasunnu, mánudaginn 29. maí, frá kl. 14:00 - 17:00.

Smáframleiðendur verða með gómsætar veitingar og býðst ungum gestum að fara á hestbak á hestum frá Syðra-Skörðugili. Prúðbúnar Pilsaþytskonur verða á svæðinu, Margrét á Mælifellsá spinnur úr hrosshári við kveðskap Hilmu Bakken í Kvæðamannafélaginu Gná. Helgi Sigurðsson sýnir handtök við torfhleðslu, Bjössi Sighvatz, Jón Egill og Guðmundur Stefán sýna eldsmíði og eigendur íslenskra fjárhunda verða með okkur.

Kl. 15:00 - 15:30 mun Dansfélagið Vefarinn stíga á stokk og taka nokkra dansa.
Kl. 16:00 - 16:20 kemur Skagfirski kammerkórinn og syngur fyrir okkur.

Þrjár nýjar sýningaropnanir:

  • Byggðasafn Skagfirðinga í 75 ár – afmælissýning í Áshúsi
  • Hér stóð bær – Skráning Byggðasafnsins á skagfirskum torfhúsum í Gilsstofu
  • Saga Gilsstofunnar og Briemsstofa

Þetta og fleira á afmælishátíðinni. Komið og eigið skemmtilegan sumardag með okkur! Hlökkum til að sjá ykkur í Glaumbæ!

Aðgangur ókeypis fyrir alla safngesti á meðan á viðburðinum stendur.

Viðburðurinn er styrktur af safnasjóði.