Fara í efni

Búið að manna Útsvarsliðið

28.08.2013
Sveinn, Guðrún og Guðný vita meir en margur

Nú dregur að því að keppni í Útsvari hefjist í Ríkissjónvarpinu.  Lið Skagafjarðar stóð sig mjög vel síðasta vetur og komst í undanúrslit. Er það besta útkoma fram til þessa hjá okkar fólki.  Það var því augljóst að leita skyldi aftur til Guðrúnar Rögnvaldardóttur, Guðnýjar Zoega og Sveins Margeirssonar, um að vera fulltrúar okkar í keppninni.  Þetta ágæta fólk ætlar að taka áskoruninni og bera uppi merki Skagfirðinga. Við óskum þeim góðs gengis í Útsvarinu.