Fara í efni

Bryndís Lilja Hallsdóttir ráðin sviðsstjóri fjölskyldusviðs Skagafjarðar

09.03.2023
Bryndís Lilja Hallsdóttir

Staða sviðsstjóra fjölskyldusviðs Skagafjarðar var auglýst laus til umsóknar í janúar sl. Sveitarstjórn Skagafjarðar hefur nú ákveðið að ráða Bryndísi Lilju Hallsdóttur í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Alls sóttu sjö um stöðuna, þar af drógu tveir umsóknir sínar til baka.

Bryndís Lilja lauk MS-gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands árið 2017. Meistararitgerð hennar var megindleg rannsókn sem fjallaði um starfsánægju grunnskólakennara í Skagafirði. Bryndís lauk BS-námi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2013 og bætti við sig námskeiðum í viðskiptafræðideild HÍ í fjármálum, rekstrarhagfræði og fjárhagsbókhaldi.

Bryndís Lilja hefur starfað sem mannauðsstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) sl. 4 ár og situr í fimm manna framkvæmdastjórn stofnunarinnar. Hjá HSN starfa milli 600-700 starfsmenn og hefur hún yfirumsjón með ráðningum og starfslokum, sinnir ráðgjöf við stjórnendur og starfsmenn í mannauðsmálum, hefur umsjón og ber ábyrgð á launamálum og gerð stofnanasamninga og kemur að hvers kyns starfsmannamálum.

Bryndís Lilja þekkir vel til sveitarfélagsins Skagafjarðar þar sem hún starfaði hjá sveitarfélaginu á árunum 2016-18 sem verkefnastjóri í atvinnu-, menningar- og kynningarmálum og leysti mannauðsstjóra Skagafjarðar af í fæðingarorlofi 2015-16.

Nöfn þeirra sem sóttu um stöðu sviðsstjóra fjölskyldusviðs eru eftirfarandi, í stafrófsröð:

  • Auður Inga Ingimarsdóttir, deildarstjóri
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir, mannauðsstjóri
  • Kristín Ella Guðmundsdóttir, réttindagæslumaður fatlaðs fólks
  • Oddur Sigurðarson, framkvæmda-, fjármála- og þjónustustjóri
  • Ólafur Jóhann Sigurðsson, starfsmaður á velferðarsviði Reykjavíkurborgar