Fara í efni

Brunavarnir Skagafjarðar auglýsa eftir starfsmanni

27.11.2013

Brunavarnir Skagafjarðar

Brunavarnir Skagafjarðar auglýsa eftir starfsmanni í starf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns.

 

 Starfssvið:

Starfið felst í vinnu við slökkvi- og sjúkraflutningaþjónustu, slökkvitækjaþjónustu og annarra starfa á slökkvistöð. 

Útkalls- og bakvaktarskylda er utan dagvinnutíma.

 Hæfniskröfur:

  • Umsækjendur skulu uppfylla eftirfarandi skilyrði  reglugerðar nr. 792/2001 um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna og lög nr. 75/2000 um Brunamál.
  • Nám í sjúkraflutningum ( EMT-I) æskilegt.
  • Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og líkamlegt heilbrigði, hafa góða sjón og heyrn,  rétta litaskynjun og ekki vera haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
  • Hafa að lokinni reynsluráðningu aukin réttindi til að stjórna a) vörubifreið og b) leigubifreið.
  • Hafa iðnmenntun (sveins- eða vélstjórapróf) sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun (stúdentspróf) og reynslu.
  • Standast læknisskoðun og þrekpróf.
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð og góð framkoma
  • Almenn tölvukunnátta

 Starfið hentar konum jafnt sem körlum.

 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

 Skila skal rafrænum umsóknum með ferilskrá, í íbúagátt sveitarfélagsins eða hér

 Umsóknarfrestur er til 16. desember 2013.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Vernharð Guðnason í síma 453-5425

 Brunavarnir Skagafjarðar sinna viðbragðsþjónustu vegna eldsvoða, björgunar og neyðarþjónustu við íbúa Skagafjarðar ásamt sjúkraflutningum. Fjögur stöðugildi eru í fullu starfi ásamt 25 slökkviliðsmönnum í hlutastarfi. Starf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna er í senn krefjandi og gefandi.