Fara í efni

Brunavarnir Skagafjarðar auglýsa eftir starfsmanni

05.12.2013

                     

Brunavarnir Skagafjarðar

Brunavarnir Skagafjarðar auglýsa eftir starfsmanni í starf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns.

Starfssvið:

Starfið felst í vinnu við slökkvi- og sjúkraflutningaþjónustu, slökkvitækjaþjónustu og önnur störf á slökkvistöð. 

Útkalls- og bakvaktarskylda er utan dagvinnutíma.

Hæfniskröfur:

  • Umsækjendur skulu uppfylla eftirfarandi skilyrði  reglugerðar nr. 792/2001 um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna og lög nr. 75/2000 um Brunamál.
  • Nám í sjúkraflutningum ( EMT-I) æskilegt.
  • Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og líkamlegt heilbrigði,
  • hafa góða sjón og heyrn,  rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
  • Hafa að lokinni reynsluráðningu aukin réttindi til að stjórna     a) vörubifreið og b) leigubifreið.
  • Hafa iðnmenntun (sveins- eða vélstjórapróf) sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun (stúdentspróf) og reynslu.
  • Standast læknisskoðun og þrekpróf.
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð og góð framkoma
  • Almenn tölvukunnátta

 

Störfin henta konum jafnt sem körlum.

 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

 Skila skal rafrænum umsóknum með ferilskrá, í íbúagátt sveitarfélagsins eða hér

 

Umsóknarfrestur er til 10. desember 2013.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Vernharð Guðnason í síma 453-5425

 

Brunavarnir Skagafjarðar sinna viðbragðsþjónustu vegna eldsvoða, björgunar og neyðarþjónustu við íbúa Skagafjarðar ásamt sjúkraflutningum. Fjögur stöðugildi eru í fullu starfi ásamt 25 slökkviliðsmönnum í hlutastarfi. Starf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna er í senn krefjandi og gefandi.