Brjóstaskimun á Sauðárkróki 10.-14. mars
25.02.2025
Brjóstamiðstöð Landspítalans er með brjóstaskimun í samstarfi við Heilsugæsluna á Sauðárkróki dagana 10. – 14. mars nk.
Með brjóstaskimun er hægt að greina brjóstakrabbamein á byrjunarstigi og draga þannig verulega úr dánartíðni vegna sjúkdómsins.
Áhersla er lögð á að konur nýti sér þjónustuna sem er að jafnaði í boði á hverjum stað árlega eða á tveggja ára fresti.
⇒ Bókun á brjostaskimun@landspitali.is eða í síma 543 9560 kl. 8:30–12:00 og 13:00 – 15:30 virka daga.