Fara í efni

Breyttar áætlanir í almenningsvögnum vegna Covid-19

09.04.2020

Í ljósi þeirra áhrifa sem COVID-19 hefur á samfélagið hefur Vegagerðin ákveðið að breyta áætlunum almenningsvagna (Strætó).

Leið 57 sem hefur viðkomu hér í Skagafirði mun keyra alla daga eftir laugardags áætlun.  

Áætlað er að breytt áætlun taki gildi eftir páska, þriðjudaginn 14. apríl og standi út maí og verður þetta þá endurskoðað með tilliti til aðstæðna og sumaráætlunar. Vert er þó að hafa í huga að tímatöflurnar eru í vinnslu og verða ekki komnar réttar inn í kerfið fyrr en 20. apríl. Þangað til verður þetta auglýst vel á vef Strætó þar sem kemur fram hvaða tímaáætlun verði farið eftir.

Hægt er skoða tímatöflu nánar hér á vef Strætó: https://www.straeto.is/is/timatoflur/3