Fara í efni

Breytt fyrirkomulag á förgun ökutækja og endurgreiðslu skilagjalds

16.09.2026

Úrvinnslusjóður vill koma á framfæri breyttu fyrirkomulagi á förgun ökutækja og endurgreiðslu skilagjalds á landsvísu.

Þegar ökutæki hefur lokið hlutverki sínu er mikilvægt að því sé skilað á viðurkennda móttökustöð til endurvinnslu og öruggrar meðhöndlunar. Í Skagafirði er ökutækjum skilað til Flokku á Sauðárkróki. Eigandi ökutækis greiðir skilagjald af því.

Gjaldið er innheimt með bifreiðagjöldum. Þessi skylda hvílir á eigendum allra ökutækja, einnig þeirra sem eru undanþegin bifreiðagjöldum samkvæmt 4. gr. laga um bifreiðagjöld. Gjaldskylda fellur niður frá og með upphafi fyrsta gjaldtímabils eftir að greitt hefur verið skilagjald af ökutækinu í full 15 ár og fyrir bifreiðir sem eru eldri en 25 ára í upphafi gjaldárs.

Þegar ökutæki er afskráð og skilað til úrvinnslu er greitt út skilagjald, nú 30.000 kr.

Fjársýslan annast greiðsluna fyrir hönd Úrvinnslusjóðs og ef bankareikningur viðtakanda skilagjaldsins er rétt skráður þar ætti skilagjaldið að greiðast út sjálfkrafa innan tveggja daga.

Forsenda þess að skilagjald fáist fyrir bílinn er að honum sé skilað á þar til bæra móttökustöð og hann afskráður til úrvinnslu. Aflétta þarf veðböndum og standa skil á tryggingaiðgjöldum áður en bílnum er skilað. Ef um rafbíl eða tvíorkubíl (plugin hybrid) er að ræða þarf að hafa samband við umboðsaðila ökutækisins. Þar fást upplýsingar um hvernig skuli farið með rafhlöðu viðkomandi tegundar af ökutæki.

Fyrsta skref er að fara inn á island.is, https://island.is/flokkur/akstur-og-bifreidar#kaup-og-sala-bifreida og velja þar „Skilavottorð – Umsókn um endurgreiðslu á skilagjaldi ökutækja“ og fara í gegnum eftirfarandi þrep:

  • 1. Veldu hnappinn „Sækja um“
  • 2. Veldu það ökutæki sem á að farga
  • 3. Skrá kílómetrastöðu
  • 4. Skila þarf ökutækinu á móttökustöð

Ef bankareikningur viðtakanda skilagjaldsins er skráður hjá Fjársýslunni berst greiðsla innan tveggja daga.

Vakin er athygli á því að ef viðtakandi greiðslu er með ógreiddar skattkröfur eða ógreidd gjöld fylgja ökutækinu, s.s. bifreiðagjöld, er skilagjaldinu skuldajafnað við þessar kröfur. Tilkynning um skuldajöfnun berst í pósthólfið þitt á island.is. Ef þú átt von á greiðslu sem skilar sér ekki veita innheimtumenn ríkissjóðs allar upplýsingar um skuldastöðu.