Fara í efni

Breytingar á skóladagatölum leikskólanna

21.12.2018
Leikskólinn Ársalir

Samþykktar hafa verið breytingar á skóladagatölum leikskólanna í fræðslunefnd.

Frá og með 1. jan. 2019 verða starfsmannafundir leikskólanna haldnir eftir lokun leikskólans.
Í stað þess að loka leikskólanum kl. 14:00 átta sinnum yfir skólaárið vegna funda, lokar leikskólinn tvo daga yfir skólaárið og verða þær lokanir miðaðar við lokun grunnskólanna.
Uppfærð skóladagatöl er að finna á heimasíðum leikskólanna.