Fara í efni

Breytingar á Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands 1. desember

18.12.2025

Þann 1. desember sl. urðu breytingar á Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands, en þá færðist Fjallabyggð undir Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra. Uppfærðar upplýsingar um Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands má nálgast hér.

Fjallabyggð er hér með þakkað fyrir gott samstarf á liðnum árum og þátttöku sveitarfélagsins í uppbyggingu þjónustunnar.

Barnaverndarþjónusta Mið-Norðurlands óskar fjölskyldum og íbúum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þjónustan minnir á mikilvægi samverustunda yfir hátíðirnar og ábyrgð allra í nærumhverfi barns að búa því gleðileg jól.