Fara í efni

Breyting á opnunartíma Byggðasafnsins

20.09.2017
Sýningin í Áshúsi í Glaumbæ

Frá og með morgundeginum 21. september styttist opnunartími sýninga Byggðasafns Skagfirðinga í Glaumbæ og verður opið virka daga kl 10-16 til 30. október. Eftir þann tíma er opið eftir samkomulagi en regluleg opnun hefst aftur 1. apríl.

Skrifstofa safnsins verður opin eftir sem áður alla virka daga kl 9-16 en nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu safnsins.