Fara í efni

Breyting á ákvæði um löndun byggðakvóta samþykkt

16.07.2015
Löndun á Hofsósi

Á 702. fundi byggðarráðs þann 13. júlí s.l. var eftirfarandi bókun gerð:

„Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir að óska eftir við Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að undanþága verði veitt frá löndunarskyldu á byggðakvóta tímabilið 1. júlí - 31. ágúst 2015. Ástæða beiðninnar er tímabundin stöðvun á vinnslu bolfisks hjá Fisk Seafood og hefur fyrirtækið því ekki tök á að taka við afla, lönduðum vegna byggðakvóta samkvæmt samningum við smábáta á svæðinu.
Málið áður á dagskrá á 21. fundi atvinnu-menningar- og kynningarnefndar 7. júlí 2015.

Samþykkt var á 329. fundi sveitarstjórnar 6.júlí 2015 að byggðarráð færi með heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi sveitarstjórnar samkvæmt III. kafla skv. 8. gr. samþykktar sveitarfélagsins frá og með 7.júlí 2015.“

Svar hefur borist frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti þar sem ráðuneytið samþykkir beiðni Sveitarfélagsins Skagafjarðar um að fella niður vinnsluskyldu vegna byggðakvóta Skagafjarðar og Hofsóss frá 1. júlí 2015 til 31. ágúst 2015.