Brák íbúðafélag auglýsir nýjar íbúðir á Freyjugötu lausar til leigu
Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúðum við Freyjugötu 9 á Sauðárkróki. Um er að ræða átta íbúða hús á tveimur hæðum, annarsvegar fjórar tveggja herbergja íbúðir, 51,8 m2 og hins vegar fjórar þriggja herbergja íbúðir, 76,7 m2
Markmið Brákar íbúðafélags hses. er að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.
Um útleigu íbúðanna gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016, í lögunum/reglugerð eru tilgreind tekju- og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu.
Umsókn um leigu
Umsókn skal senda á netfangið: brakibudafelag@brakibudafelag.is , með upplýsingum um hagi og húsnæðisstöðu umsækjenda ásamt afriti af síðasta skattframtali og afriti af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda.
Umsóknarfrestur er til og með 04.02.2025
Brák íbúðafélag hses. úthlutar íbúðunum þegar farið hefur verið yfir allar umsóknir.