Brák íbúðafélag auglýsir íbúð lausa til leigu að Freyjugötu 9 á Sauðárkróki
Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúð að Freyjugötu 9, um er að ræða um 77m² íbúð með tveimur svefnherbegjum. Íbúðin er laus í byrjun janúar.
Leiguverð miðast við byggingarkostnað íbúða og er leiguverð 224.900kr fyrir utan hita og rafmagn. Vekjum athygli á því að leigjendur eiga líklega rétt á húsnæðisbótum.
Brák íbúðafélag er rekið án hagnaðarmarkmiða og er markmið Brákar íbúðafélags hses. að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.
Um útleigu íbúðarinnar gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016, í lögunum/reglugerð eru tilgreind tekju- og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu.
Uppbygging þessara íbúða er í samræmi við húsnæðisáætlun sveitarfélagsins og er gott dæmi um blandað samstarfsverkefni þar sem húsnæðisstuðningur sveitarfélagsins og ríkisins er nýttur til uppbygginga íbúða utan höfuðborgarsvæðisins .
Umsókn um leigu
Umsókn skal senda á netfangið: brakibudafelag@brakibudafelag.is , með upplýsingum um hagi og húsnæðisstöðu umsækjenda ásamt afriti af síðasta skattframtali og afriti af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda.
Umsóknarfrestur er til og með 25.desember 2025.
Brák íbúðafélag hses. úthlutar íbúðinni þegar farið hefur verið yfir allar umsóknir.