Fara í efni

Borun könnunarholu á Nöfunum

31.08.2018
Staðsetning holunnar ofan við Lindargötu

Á næstu dögum mun Ræktunarsamband Flóa og Skeiða hefja borun á könnunarholu fyrir kalt vatn á Nafabrúnum ofan við Lindargötu á Sauðárkróki. Holan er staðsett á landi í eigu sveitarfélagsins og er staðsetning holunnar ákveðin í samráði við sérfræðinga hjá ÍSOR, Íslenskum orkurannsóknum. Áætlað er að bora niður á um 50 m dýpi. Ef neysluhæft vatn finnst í nýtanlegu magni í holunni er áætlað að tengja holuna við stofnlögn vatnsveitu sem liggur frá Sauðárgili og að vatnstönkum á Gránumóum.