Fara í efni

Borhola SK-32 í Hrolleifsdal virkjuð

13.10.2014

Síðsumars var unnið hörðum höndum að virkjun borholu SK-32 í Hrolleifsdal en holan er staðsett um 35 m norðan við núverandi Starfsmenn Skagafjarðarveitna í Hrolleifsdalborholu sem þjónar Hofsósi og nágrenni. Nýja holan var boruð árið 2012 og er um 1.100 m djúp og með vinnslufóðringu niður á 300 m dýpi. Framkvæmdin fólst í því að koma upp dæluhúsi sem hýsir mótor borholudælunnar og annan stýribúnað. Þann 22. og 23. september var dælunni komið fyrir í holunni. Dælan er á 200 m dýpi og voru í allt settar saman 65 einingar af dæluröri og dæluöxli en hver eining er rúmir 3 m að lengd. Til að hífa einingarnar var fenginn öflugur krani enda er heildarþungi þeirra um 10 tonn þegar búið er að tengja allar einingarnar saman. Verkið gekk mjög vel og tók það einungis um 2 daga að koma dælunni á 200 m dýpi.

Eftir að dælunni var komið fyrir hefur verið unnið að frágangi á lögnum og stýribúnaði í dælustöðinni. Dælan verður síðan gangsett einhvern næstu daga og prufudælt úr holunni og er stefnt að því að borholan verði tengd inn á kerfið fyrir árslok.

Virkun holunnar mun auka afhendingaröryggi á heitu vatni til notenda og er nauðsynleg viðbót þegar horft er til stækkunar veitusvæðisins.