Fara í efni

Bókagjöf til leikskólans Tröllaborgar

03.12.2015
Frá afhendingu bókanna í Tröllaborg.

Minningarsjóður Svandísar Þulu færði leikskólanum Tröllaborg á Hofsósi bókagjöf í gær. Svandís Þula Ásgeirsdóttir lést í bílslysi þann 2. desember 2006 einungis fimm ára gömul. Hún var í bíl ásamt föður sínum og eldri bróður þegar slysið varð. Bróðir hennar Nóni Sær Ásgeirsson sem þá var átta ára gamall slasaðist alvarlega og er lamaður fyrir neðan mitti. Faðir þeirra Ásgeir Ingvi Jónsson er ættaður frá Óslandi í Skagafirði.

Fjölskylda Svandísar Þulu stofnaði minningarsjóðinn og hefur haft það fyrir sið að færa skólum eða leikskólum gjafir 2. desember til minningar um hana. Það var systir Ásgeirs, Ásta Ólöf Jónsdóttir, sem afhenti gjöfina fyrir hönd minningarsjóðsins.