Fara í efni

Blómaker horfið af brúnni

17.07.2017
Eitt blómaker vantar á brúna.

Garðyrkjudeild sveitarfélagsins hefur á undanförnum mánuðum unnið hart að því að fegra umhverfi sveitarfélagsins. Eitt af þeirra verkum var að koma fyrir blómakerjum með sumarblómum á neðstu brúna yfir Sauðá, til móts við N1 Ábæ.

Eitt þessara blómakerja er nú horfið af brúnni og óskum við eftir aðstoð ykkar við að finna það. Ef þið rekist á kerið þá biðjum við ykkur um að skila því annaðhvort aftur á brúna eða í Ráðhúsið.

Hér má sjá hvernig kerið lítur út.

Blóm