Fara í efni

Blóðbankabíllinn á Sauðárkróki í vikunni

28.08.2017
Blóðbíllinn

Blóðbankabíllinn verður á Sauðárkróki næstkomandi miðvikudag og fimmtudag 30. og 31. ágúst. Bíllinn verður staðsettur við Skagfirðingabúð eins og vanalega og stendur blóðsöfnun yfir kl 12-17 á miðvikudeginum og 9-11:30 á fimmtudeginum.

Munum að blóðgjöf er lífgjöf!