Fara í efni

Birkilundur auglýsir eftir leikskólakennara

02.11.2015

Leikskólakennari óskast í 100% stöðu við Leikskólann Birkilund í Varmahlíð. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Vera með leyfisbréf leikskólakennara / réttindi sem leikskólakennari skv. 3. gr. laga nr. 87/2008*. (*Ef ekki berast umsóknir frá leikskólakennurum sem uppfylla hæfniskröfur er heimilt að ráða leiðbeinanda í stöðuna).
  • Stundvísi, dugnaður og áreiðanleiki í starfi.

Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ vegna FL /  við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Steinunn Arnljótsdóttir, leikskólastjóri, í síma 453-8215 eða með því að senda fyrirspurn á birkilundur@skagafjordur.is.

Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2015.

Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (störf í boði) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.

Í Birkilundi er unnið með SMT skólafærni og Stig af stigi. Birkilundur er í samstarfsverkefni  með Varmahlíðarskóla þar sem áhersla er lögð á félagsleg samskipti.

Í Birkilundi eru tvær deildir með 35 börn á aldrinum 1-6 ára.

Á nýrri deild, sem stefnt er að að opna í nóvember, er gert ráð fyrir að geti verið 12 börn á aldrinum 1-2 ára.