Fara í efni

Bilun í hitaveitukerfinu í Hlíðahverfi á Sauðárkróki

05.10.2021
Upp er komin bilun í hitaveitukerfinu í Hlíðahverfi á Sauðárkróki. Vegna þess hefur verið lokað fyrir rennsli á heitu vatni syðst í hverfinu. Það eru göturnar Lerkihlíð, Hvannahlíð, Furuhlíð, Kvistahlíð og Grenihlíð.
Búast má við truflunum á rennsli fram eftir degi.
Skagafjarðarveitur biðjast velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.