Fara í efni

Bæjarhátíðin Hofsós heim hefst í dag

22.06.2023

Það verður mikið um að vera næstu daga á Hofsósi þar sem bæjarhátíðin Hofsós heim fer fram. Dagskráin er metnaðarfull að vanda og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi um helgina.

Dagskráin byrjar í dag, fimmtudag, þar sem íbúar sameinast og skreyta götur og hús, sýningar opna í frystihúsinu, það verður grillað í Höfðaborg og endað á pöbbkvissi. Á föstudag og laugardag verður svo fjölbreytt dagskrá með ratleik, gönguferð, sundlaugarpartýi, sundfimleikum, dansi, körfuboltaþrautum, markaði, sýningum, bjórjóga, Hofsósleikum, varðeldi, fjölbreyttum tónlistarviðburðum o.fl. o.fl. Það borgar sig því að skoða dagskrána vel svo ekkert fari framhjá manni.

Dagskrá bæjarhátíðarinnar Hofsós heim er hér að neðan og hvetjum við alla til þess að mæta á bæjarhátíðina og eiga þar ánægjulegar stundir í góðum félagsskap, góðu veðri og frábæru umhverfi.