Fara í efni

Auglýst er til sölu jörðin Borgarey í Skagafirði

30.12.2019

Til sölu er jörðin Borgarey í Skagafirði. Jörðin mælist 94,2 ha að stærð sbr. hnitsettan afstöðuuppdrátt af jörðinni útg. 18. júní 2019. Jörðin liggur austan Húseyjarkvíslar og á landamerki að Húsey að norðan, Syðra-Vallholti og horni Ytra-Vallholts að austan og Vindheimum að sunnan. Landið er í 12 m hæð yfir sjávarmáli, þurrt og algróið.

Óskað er eftir tilboðum í jörðina. Tilboðsfrestur er til kl. 15 þann 14. janúar n.k. Tilboð skulu send til skrifstofu Fasteignasölu Sauðárkróks að Sæmundargötu 1 á Sauðárkróki eða með tölvupósti á póstfangið agust@krokurinn.is. Seljandi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.