Fara í efni

Auglýst eftir rekstraraðila fyrir sundlaugina á Sólgörðum

30.10.2026

Skagafjörður auglýsir eftir aðila til að reka sundlaugina á Sólgörðum í Fljótum frá 1. janúar 2027 til 31. desember 2030.

Rekstraraðili skal samkvæmt nánari þjónustusamningi annast daglegan rekstur og umsjón með starfsemi sundlaugarinnar í samræmi við starfsleyfi heilbrigðisnefndar og lögfestar reglur, þar með talið starfsmannahald, laugargæslu, afgreiðslu, þrif, innra eftirlit, öryggisáætlanir, innkaup á rekstrarvörum og efnum til vatnshreinsunar og annað sem rekstrinum tengist.

Rekstraraðili skal ábyrgjast að starfsmenn er annast sundlaugarvörslu hafi náð að lágmarki 18 ára aldri, standist árlegt hæfnispróf laugarvarða og hafi lokið árlegri þjálfun í sérhæfðri skyndihjálp og neyðarviðbrögðum í samræmi við ákvæði reglugerðar um hollustuhætti á sund- og baðstöðum nr. 814/2010. Skylt er að starfsemi og starfsfólk uppfylli ákvæði reglugerðarinnar að öllu leyti, en æskilegt er talið að starfsmenn hafi náð 20 ára aldri og hafi fyrri reynslu af laugargæslu.

Rekstraraðili skuldbindur sig til að hafa Sundlaugina á Sólgörðum opna fyrir almenningi að lágmarki sem hér segir:

Sumaropnun 1. júní – 23. ágúst

  • Þriðjudagur – föstudagur kl. 15:00-21:00
  • Laugardagur – sunnudagur kl. 12:00-17:00

Vetraropnun 23. ágúst – 31. maí

  • Þriðjudaga kl. 17:00-19:00
  • Föstudaga kl. 19:30-22:00
  • Laugardaga kl. 13:00-17:00

Rekstraraðili skuldbindur sig til að fylgja gildandi gjaldskrá Skagafjarðar hverju sinni hvað gjaldtöku fyrir afnot almennings að sundlauginni varðar.

Umsóknum um „Rekstur sundlaugarinnar að Sólgörðum“ skal skila fyrir miðvikudaginn 15. nóvember nk. á netfangið skagafjordur@skagafjordur.is.

Umsóknum skal fylgja greinargerð um áform og mögulegt rekstrarfyrirkomulag sem og samantekt um umsækjanda, m.a. fyrri störf, reynslu af rekstri og starfsmannahaldi.

Nánari upplýsingar veitir Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs í síma 455-6000 eða á netfangið baldur@skagafjordur.is.

Skagafjörður áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.