Fara í efni

Auglýsing um skipulagsmál: Langaborg í Hegranesi

10.12.2025

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 43. fundi sínum þann 19. nóvember 2025 að auglýsa skipulagslýsingu um gerð deiliskipulags fyrir „Langaborg í Hegranesi, Skagafirði“ skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagssvæðið afmarkast af lóðarmörkum Lönguborgar og er um 29.469 m² að stærð.

Skilmálar eins og fjöldi bygginga, hámarks nýtingarhlutfall, eða hámarks byggingarmagn, hámarks byggingarhæð og fjöldi hæða munu koma fram í tillögu að deiliskipulagi.

Skipulagslýsingin er auglýst frá 10. desember 2025 til og með 4. janúar 2026. Hægt er að skoða skipulagslýsinguna í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 1624/2025. Skipulagslýsingin mun jafnframt liggja frammi til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is. Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi skipulagslýsinguna.

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is undir máli númer 1624/2025 í síðasta lagi 4. janúar 2026. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is

Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.

Skipulagslýsing

Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar