Auglýsing um skipulag: Tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 48. fundi sínum þann 22. apríl 2026 að auglýsa skipulagslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag fyrir ”Tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki, Skagafirði” í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Uppdráttur ásamt greinargerð, verknúmer SSDS-22033C, dags. 15.04.2026 unnin á Teiknistofu Norðurlands fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.
Helsta markmið deiliskipulagsins er að setja fram stefnu um umgjörð og skipulag fyrir nýtt tjaldsvæði á Sauðárkróki þar sem fyrirhugað er að núverandi tjaldsvæði á Flæðum víki vegna uppbyggingar menningarhúss. Nýju tjaldsvæði er ætlað að bjóða upp á fjölbreytt og rúmgott svæði til að taka á móti þeim fjölda tjaldsgesta sem koma ár hvert. Einnig er gert ráð fyrir að tjaldsvæðið getið byggst upp í áföngum og stækkað en skipulaginu er ætlað að skapa ramma um uppbyggingu til lengri tíma. Unnin var frumhönnun af svæðinu árið 2024 samhliða staðarvali við vinnslu Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 og byggir skipulagið að hluta til á þeirri vinnu.
Skipulagslýsingin er auglýst frá 29. apríl 2026 til og með 21. maí 2026. Hægt er að skoða lýsinguna í Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 485/2026. Skipulagslýsingin mun jafnframt liggja frammi til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is.
Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi skipulagslýsinguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is undir máli númer 485/2026 í síðasta lagi 21. maí 2026. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is. Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.