Fara í efni

Auglýsing um skipan í kjördeildir í Sveitarfélaginu Skagafirði

20.10.2016
Þingsalur Alþingis

 Við Alþingiskosningar sem fram fara  laugardaginn 29. október n.k. er skipan í kjördeildir sem hér segir:

 

Kjördeild í Félagsheimilinu Skagaseli,

þar kjósa íbúar fyrrum Skefilstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00

 

Kjördeild í Bóknámshúsi FNV,

þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs- og Rípurhrepps – kjörfundur hefst kl. 09:00

 

Kjördeild í Félagsheimilinu Árgarði 

þar kjósa íbúar fyrrum Lýtingsstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00

 

Kjördeild í Grunnskólanum að Hólum,

þar kjósa íbúar fyrrum Hóla- og Viðvíkurhrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00

 

Kjördeild í Félagsheimilinu Höfðaborg Hofsósi,

þar kjósa íbúar fyrrum Hofshrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00

 

Kjördeild í Grunnskólanum á Sólgörðum,

þar kjósa íbúar fyrrum Fljótahrepps – kjörfundur hefst kl 12:00

 

Kjördeild í Varmahlíðarskóla,

þar kjósa íbúar fyrrum Staðar – og Seyluhrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00

 

Kjördeild í Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki,

kjörfundur hefst kl. 13:00

 

Kjörfundi slíta 8 klst. eftir að kjörfundur hefst, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær sem er ef allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði. 

 

Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórnin er sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.

 

Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00

 

Unnt er að kjósa utan kjörfundar hjá sýslumanni Norðurlands vestra á Sauðárkróki

 kl. 10:00-15:00 virka daga fram að kjördegi og kl. 16:00-18:00 á kjördag þann 29. október 2016

 

Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í Bóknámshúsi FNV.

 

Yfirkjörstjórn