Fara í efni

Auglýsing um skipan í kjördeildir í Sameinuðu sveitarfélagi Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar

04.05.2022

Við sveitarstjórnarkosningar sem fram fara laugardaginn 14. maí n.k. er skipan í kjördeildir sem hér segir:

Kjördeild í Félagsheimilinu Skagaseli,

þar kjósa íbúar fyrrum Skefilstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00

 

Kjördeild í Bóknámshúsi FNV,

þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs- og Rípurhrepps – kjörfundur hefst kl. 09:00

 

Kjördeild í Félagsheimilinu Árgarði

þar kjósa íbúar fyrrum Lýtingsstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00

 

Kjördeild í Grunnskólanum að Hólum,

þar kjósa íbúar fyrrum Hóla- og Viðvíkurhrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00

 

Kjördeild í Höfðaborg Hofsósi

þar kjósa íbúar fyrrum Hofshrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00

 

Kjördeild á Ketilási

þar kjósa íbúar fyrrum Fljótahrepps – kjörfundur hefst kl 12:00

 

Kjördeild í Varmahlíðarskóla,

þar kjósa íbúar fyrrum Staðar – og Seyluhrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00

 

Kjördeild í Héðinsminni

þar kjósa íbúar Akrahrepps - kjörfundur hefst kl. 12:00

 

Kjörfundi slíta 8 klst. eftir að kjörfundur hefst, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær sem er ef allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði.

 

Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórnin er sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.

 

Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00

 

Unnt er að kjósa utan kjörfundar hjá sýslumanni Norðurlands vestra á Sauðárkróki fram að kjördegi frá kl. 09:00 til kl. 15:00 virka daga og til kl. 17:00 á kjördag.

 

Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í Bóknámshúsi FNV.

Yfirkjörstjórn