Fara í efni

Atvinnulífssýning Skagafjarðar dagana 19.-20. september nk.

12.06.2026

Atvinnulífssýning Skagafjarðar verður haldin í íþróttahúsinu á Sauðárkróki helgina 19.-20. september nk. Sem fyrr er sýningunni ætlað að varpa ljósi á þann fjölbreytileika sem er í þjónustu, framleiðslu, mannlífi og menningu í sveitarfélaginu ásamt því að vekja jákvæða athygli á samfélaginu.

Sýningin er ætluð fjölbreyttum hópi aðila, þar á meðal þjónustufyrirtækjum, iðnfyrirtækjum, matvælafyrirtækjum, ferðaþjónustufyrirtækjum, rannsóknaraðilum og frumkvöðlum eða sprotafyrirtækjum. Einnig geta veitufyrirtæki, skólar, veitendur opinberrar þjónustu, félagasamtök og menningarfélög tekið þátt svo fáein dæmi séu nefnd.

Atvinnulífssýningin verður haldin með svipuðu sniði og fyrri sýningar. Sýnendum gefst kostur á að kynna starfsemi sína í sérstökum básum í íþróttahúsinu og jafnframt er heimilt að selja vörur og þjónustu. Þá stendur til að halda málstofur um fjölbreytt málefni sömu daga og einnig verður fjölbreytt skemmtidagskrá á sviðinu.

Nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu mannlif@skagafjordur.is. Skráningarblöð má nálgast á heimasíðu Skagafjarðar á komandi vikum.