Fara í efni

Ársreikningur 2024 samþykktur í sveitarstjórn

21.05.2025

Ársreikningur Skagafjarðar fyrir árið 2024 var samþykktur samhljóða við síðari umræðu í sveitarstjórn miðvikudaginn 14. maí sl. Niðurstaðan er afar ánægjuleg, rekstrarafgangur var samtals að upphæð 480 m.kr. sem er besta niðurstaða sveitarfélagsins síðan 1998 þegar Sveitarfélagið Skagafjörður varð til. Einnig er ánægjulegt frá því að segja að afborganir langtímalána voru hærri en taka nýrra lána þriðja árið í röð, skuldahlutfall og skuldaviðmið lækkuðu einnig þriðja árið í röð, auk þess sem eiginfjárhlutfall og handbært fé í árslok hækkuðu á milli ára.  Íbúum Skagafjarðar fjölgaði um 40 á milli ára.

Nánar um ársreikninginn:

Rekstrartekjur Skagafjarðar námu á árinu 9.493 m.kr. af samstæðunni í heild, A- og B-hluta. Þar af voru rekstrartekjur A-hluta 8.077 m.kr. Rekstrargjöld samstæðunnar að frátöldum afskriftum og fjármagnsliðum voru 8.130 m.kr., þ.a. A-hluta 7.251 m.kr. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er jákvæð um 1.364 m.kr., þar af er rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði jákvæð um 826 m.kr. Afskriftir eru samtals 350 m.kr., þar af 193 m.kr. hjá A-hluta. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru hjá samstæðunni í heild samtals 516 m.kr., þ.a. eru 418 m.kr. fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur í A-hluta sveitarsjóðs. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta á árinu 2024 er jákvæð um 480 m.kr. en rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um 215 m.kr.
Eignir Skagafjarðar A- og B-hluta voru í árslok samtals 15.417 m.kr., þ.a. voru eignir A hluta 11.789 m.kr. Skuldir og skuldbindingar voru í árslok 2024 samtals 10.290 m.kr., þ.a. hjá A-hluta 9.007 m.kr. Langtímaskuldir námu alls 6.418 m.kr. hjá A- og B-hluta auk 604 m.kr. næsta árs afborgana. Eigið fé nam 5.127 m.kr. hjá samstæðunni í árslok og er eiginfjárhlutfall 33,3%. Af þessari tölu nam eigið fé A-hluta 2.781 m.kr. og eiginfjárhlutfall 23,6%. Lífeyrisskuldbindingar nema 1.986 m.kr. í árslok.
Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nam 1.266 m.kr., þar af er veltufé frá rekstri A-hluta 753 m.kr. Handbært fé frá rekstri A- og B-hluta er 1.350 m.kr. Fjárfestingahreyfingar námu á árinu 2024, 1.139 m.kr., þar af námu fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum 1.268 m.kr. Afborganir og skuldbreytingar langtímalána á árinu 2024 eru 664 m.kr., handbært fé nam 320 m.kr. í árslok. Tekin voru ný langtímalán að fjárhæð 328 m.kr.
Í 64. gr. sveitarstjórnarlaga er kveðið á um að heildarskuldir og skuldbindingar A- og B-hluta í reikningsskilum skv. 60. gr. megi ekki vera hærri en nemur 150% af reglulegum tekjum. Frá heildarskuldum og skuldbindingum er heimilt að draga frá hluta lífeyrisskuldbindinga sem og tekjur og skuldir veitna og langtímakröfu vegna Brúar lífeyrissjóðs. Hjá Skagafirði er skuldahlutfall í ársreikningi fyrir árið 2024, 108% án þess að dreginn sé frá sá hluti af heildarskuldum sem heimilað er í lögum og reglugerð. Skuldaviðmið er 86% þegar búið er að draga frá það sem heimilt er.

Ársreikninginn er að finna hér og greinagerð sveitarstjóra er að finna hér