Fara í efni

Árskóli auglýsir eftir kennara

14.09.2015

Árskóli auglýsir eftir kennara

Árskóli á Sauðárkróki auglýsir eftir tónmenntakennara í 100% starf. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Menntunar- og hæfnisskilyrði:

  • Vera með leyfisbréf grunnskólakennara.
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
  • Stundvísi, dugnaður, heiðarleiki og áreiðanleiki í starfi.
  • Framhaldsnám í tónlist er æskilegt.

Starfið hentar körlum jafnt sem konum. Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ vegna FG.

Umsóknarfrestur er til og með 28. september 2015

Nánari upplýsingar um starfið veitir Óskar G. Björnsson, skólastjóri, í síma 455-1100 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið oskargb@arskoli.is.

Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.