Fara í efni

Árshátíð Varmahlíðarskóla á föstudaginn

13.01.2015

Eldri nemendur Varmahlíðarskóla halda árshátíð sína næstkomandi föstudag kl 20:00 í Miðgarði með uppsetningu á söngleiknum Footloose. Sýningin er í leikgerð og þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar og leikstjórn er í höndum Helgu Rósar Sigfúsdóttur. 16 ára og eldri greiða 2.500 kr og er veislukaffi að sýningu lokinni innifalið í verðinu en grunnskólanemendur greiða 1.000 kr.

Að sýningu lokinni verður  verður slegið upp balli fyrir nemendur 7.-10. bekkjar og mun frístundastrætó ganga. Nánar