Fara í efni

Árshátíð miðstigs Árskóla

30.01.2018
Árskóli á Sauðárkróki

Miðstig Árskóla eða 5., 6. og 7. bekkur, heldur sýna árlegu árshátíð í dag og á morgun í félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki. Dagskráin er fjölbreytt að vanda, leikur og söngur úr ýmsum áttum.

 

Sýningar verða sem hér segir:

Þriðjudagur 30. janúar kl. 17:00 og 20:00.

Miðvikudagur 31. janúar kl. 17:00 og 20:00.

 

Miðaverð er:

500 kr. fyrir börn á leikskólaaldri

1.000 kr. fyrir grunnskólanemendur

1.500 kr. fyrir fullorðna

 

Miðasala er opin báða dagana í Bifröst frá kl. 14:00-18:00 og 19:00-20:00. Einnig er hægt að panta miða í síma 453-5216.

Athugið að ekki er unnt að taka við greiðslukortum en bent er á að hraðbankar eru staðsettir nálægt Bifröst.