Fara í efni

Árshátíð miðstigs Árskóla

28.01.2015

Á heimasíðu Árskóla segir að árshátíðarsýningar miðstigs skólans séu í Bifröst þessa dagana. Krakkarnir eru með frumsamin verk. 5. bekkur sýnir leikritið Merlín sem fjallar um uppgvötun krakkanna þegar þau voru að leika sér í Litlaskógi. 6. bekkur sýnir Heilsubælið þar sem segir frá  ýmsu sem á daga þeirra hefur drifið frá í haust og 7. bekkur flytur leikritið Voði og illmennin ógurlegu en það er frumsamið af nemendum bekkjarins.  Leikritið fjallar um vísindamann sem vill ná yfirráðum í heiminum.

Myndir frá sýningunum eru hér.