Fara í efni

Árshátíð grunnskólanema á Hofsósi

01.04.2016
Nemendur í grunnskólanum á Hofsósi - mynd GaV

Í kvöld föstudaginn 1. apríl verða nemendur í Grunnskólanum austan Vatna á Hofsósi með árshátíð í Höfðaborg kl 20. Krakkarnir bjóða uppá fjölbreytt skemmtiatriði, leikþætti og söng. 

Krakkarnir í Nemendafélaginu sjá svo um að halda uppi góðri stemmingu til kl 00:30 og munu skólabílar keyra að skemmtun lokinni.

Miðaverð er 500 kr fyrir grunnskólabörn og 1.800 kr fyrir fullorðna. Innifalið í miðaverðinu eru kaffiveitingar.

Krakkarnir bjóða alla velkomna á skemmtunina!