Fara í efni

Árshátíð GAV á Hofsósi í dag 22. mars

22.03.2018
Mynd frá árshátíð á Hofsósi árið 2016

Árshátíð Grunnskólans austan Vatna verður í Höfðaborg á Hofsósi í dag fimmtudaginn 22. mars og hefst kl 18:15. Í boði verða fjölbreytt skemmtiatriði,  leikur, söngur og dans. Nemendur verða með pizzusölu þegar dagskránni lýkur og síðan verður slegið upp diskóteki.

Frítt er inn fyrir leikskóla- og grunnskólabörn en kostar 1.800 kr fyrir fullorðna.