Fara í efni

Árshátíð 8. og 9. bekkja Árskóla

03.12.2014

Árshátíð 8. og 9. bekkja Árskóla eru 3. og 4. desember í Bifröst og eru tvær sýningar báða dagana kl 17 og 20. Krakkarnir eru með frumsamið efni og mun 8. bekkur sýna okkur hvernig það er að vera 13 ára, hvort sem þú ert stelpa eða strákur. 9. bekkur tekur hinsvegar fyrir sjónvarpsefni, uppáhaldsþætti og fyndnar auglýsingar. Krakkarnir lofa góðri skemmtun og rennur ágóði sýninganna í ferðasjóð 10. bekkjar.

Miðaverð er 1500 kr fyrir fullorðna, 1000 kr fyrir grunnskólanema og 500 kr fyrir börn á leikskólaaldri. Miðapantanir eru í síma 453 5216 báða dagana milli kl 14 og 20.