Fara í efni

Áróra sigraði söngkeppni Friðar

16.12.2014

Söngkeppni Friðar var haldin í Miðgarði á föstudaginn þar sem fimm atriði kepptu um að komast í Samfés í mars.  Það var Áróra Árnadóttir sem bar sigur úr býtum og fékk hún að launum gjafabréf frá Tónabúðinni á Akureyri, stúdíói Rögnvaldar Valbergssonar, gjafabréf frá Hard Wok og frá KS Varmahlíð. Bjartasta vonin voru þær Sylvía og Malen og frumlegasta atriðið var Óður til framsóknar. Nánar má lesa um keppnina og sjá myndir af atriðunum á heimasíðu Húss frítímans