Fara í efni

Arna Kristjánsdóttir lætur af störfum í Ráðhúsinu

24.04.2015

Í dag lætur Arna Kristjánsdóttir af störfum í Ráðhúsinu á Sauðárkróki eftir margra ára dygga þjónustu. Arna er búin að starfa í Ráðhúsinu síðan um mitt ár 2003 eða í tæp 12 ár en nú ætlar hún að flytja sig um set suður til Selfoss í námunda við systur sína.

Örnu verður sárt saknað í Ráðhúsinu en við óskum henni að sjálfsögðu góðs gengis á nýjum vettvangi og vonum að hún heimsæki okkur sem oftast hingað norður.