Áramótabrennur og flugeldasýningar í Skagafirði
Nú líður að lokum ársins 2024 og verður árið kvatt og nýju ári fagnað með áramótabrennum og flugeldasýningum eins og hefð er fyrir. Hér að neðan eru upplýsingar um áramótabrennur og flugeldasýningar í Skagafirði á gamlársdag:
Hofsós
Kl. 17:00 – Áramótabrenna við Móhól ofan við Hofsós. Flugeldasýning hefst kl. 17:30.
Umsjón: Björgunarsveitin Grettir.
Hólar
Kl. 20:30 – Flugeldasýning hefst kl. 21:00.
Umsjón: Björgunarsveitin Grettir.
Varmahlíð
Kl. 17:00 – Flugeldasýning á túninu neðan við Varmahlíð.
Umsjón: Flugbjörgunarsveitin Varmahlíð.
Sauðárkrókur
Kl. 20:30 – Áramótabrenna staðsett milli Borgargerðis og Sauðárkróksbrautar, til móts við leikskólann Ársali. Flugeldasýning hefst kl. 21:15.
ATH! Skotið verður af reiðveginum austan við brennusvæðið (ný staðsetning).
Umsjón: Björgunarsveitin Skagfirðingasveit og Skátafélagið Eilífsbúar.
Gleðilegt nýtt ár!