Fara í efni

Áramótabrennur í Skagafirði

29.12.2016
Áramótabrenna

Fjórar brennur eru í Skagafirði um áramótin, á Hofsósi, Hólum, Sauðárkróki og Varmahlíð. Það eru björgunarsveitirnar sem hafa veg og vanda af brennunum og flugeldasýningunum eins og áður.

Kveikt verður í öllum áramótabrennunum á sama tíma kl 20:30 og flugeldasýningarnar hefjast kl 21. Á Hofsósi er brennan við Móhól og á Hólum sunnan við Víðines. Á Sauðárkróki er brennan norðan við hús Vegagerðarinnar og í Varmahlíð við afleggjarann upp í Efri-byggð.

Hið árlega Gamlárshlaup á Sauðárkróki hefst við íþróttahúsið kl 13 á gamlársdag og er ekkert þáttökugjald og allir velkomnir. Skráning hefst kl 12 í anddyrinu.