Fara í efni

Áramótabrennur í Skagafirði 2013

27.12.2013

Fjórar áramótabrennur eru í Skagafirði á gamlárskvöld, á Sauðárkróki, Hofsósi, Hólum og Varmahlíð og hefjast þær kl. 20:30 á öllum stöðum. Brennan á Sauðárkróki er neðan við iðnaðarsvæðið norðan við áhaldahús sveitarfélagsins,  á Hofsósi á Móhól, á Hólum sunnan við Víðines og í Varmahlíð við afleggjarann í Efribyggð. Björgunarsveitirnar verða með flugeldasýningar á öllum stöðunum og hefjast þær kl. 21:00.