Fara í efni

Alþjóðlegi safnadagurinn í Glaumbæ 18. maí nk.

12.05.2026
Þema alþjóðlega safnadagsins árið 2026 er „Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi“. Á tímum sundrungar, skautunar og ójafns aðgengis að þekkingu og menningu gegna söfn lykilhlutverki í að endurbyggja tengsl þvert á kynslóðir, samfélagshópa og landamæri. Þannig stuðla þau að samtali, skilningi, þátttöku og friði innan samfélaga og á heimsvísu.
 
Í tilefni dagsins, þann 18. maí næstkomandi, verður frítt á safnið kl. 16:00 -18:00 og boðið upp á leiðsagnir og safnabingó.
 
Þá mun nýr matseðill í Áshúsi líta dagsins ljós, auk þess sem nú er hægt að gæða sér á göróttari drykkjum á kaffihúsinu.
 
Lesa má nánar um alþjóðlega safnadaginn hér.