Fara í efni

Allir með í Skagafirði mánudaginn 28. september

28.09.2026

Allir með íþróttaæfingar hefjast með kynningartíma í íþróttahúsinu á Sauðárkróki mánudaginn 28. september kl. 17:30–18:15. Verkefnið er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF (Íþróttasamband fatlaðra).

Allir með eru íþróttaæfingar fyrir börn með fatlanir og stuðningsþarfir á aldrinum 6–16 ára. Loksins eru að hefjast æfingar í Skagafirði. Fjórar deildir innan Tindastóls koma að Allir með að þessu sinni og verður í boði fótbolti, badminton, frjálsar íþróttir og körfubolti.

Mánudaginn 28. september verður kynningartími í íþróttahúsinu á Sauðárkóki kl. 17:30–18:15. Þar gefst einstaklingum kostur á að koma og prófa þær greinar sem eru í boði. Æfingarnar eru einstaklingsmiðaðar og ættu allir að geta gert eitthvað við sitt hæfi. Ef það eru einhverjir sem treysta sér ekki á æfinguna þá er fundin lausn á því og einstaklingur fær sér verkefni. Markmiðið er að allir geti verið með á sínum forsendum.

Fyrirkomulagið verður þannig að fyrsti tíminn verður kynning á þeim greinum sem eru í boði en eftir það á hver íþróttagrein sinn dag og verða greinarnar rúllandi. Æfingaáætlunina má sjá hér að neðan (athugið að hún gæti þó breyst eitthvað).

Skráning fer fram á Abler en ekki þarf að skrá sig í kynningartímann.

Haustönn – mánudagar kl. 17:30–18:15:

Dagsetning

Grein / viðburður

28. september 2026

Kynningartími – allar greinar

5. október 2026

Fótbolti

12. október 2026

Badminton

19. október 2026

Körfubolti

26. október 2026

Frjálsar íþróttir

2. nóvember 2026

Fótbolti

9. nóvember 2026

Badminton

16. nóvember 2026

Körfubolti

23. nóvember 2026

Frjálsar íþróttir

30. nóvember 2026

Fótbolti

7. desember 2026

Badminton

14. desember 2026

Körfubolti

21. desember 2026

Frjálsar íþróttir (síðasti tími fyrir jólafrí)

Hér er hægt að skoða heimasíðu Allir með

Hér er hægt að skoða heimasíðu ÍF Íþróttasamband fatlaðra

Hér er hægt að nálgast allar upplýsingar um Allir með í Skagafirði (2) Facebook

Aldís María Jóhannsdóttir er verkefnastjóri Allir með í Skagafirðir. Aldís María er á loka ári í Þroskaþjálfafræðum við Háskóla Íslands og hefur unnið lengi með börnum og ungmennum með fatlanir. Einnig hefur hún stundað fótbolta frá unga aldri og spilað með Þór/KA og Tindastól.

Ef einhverjar spurningar vakna þá ekki hika við að hafa samband við Aldísi Maríu aldismariajo@gmail.com