Fara í efni

Álagningu fasteignagjalda 2021 lokið

27.01.2021

Allir greiðendur fasteignagjalda til sveitarfélagsins, einstaklingar og lögaðilar, geta nú nálgast álagningarseðla í Íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins. Einnig er hægt að sækja álagningarseðla á vefsíðu island.is undir flipanum „Mínar síður“.

Við álagningu nú í janúar er reiknaður afsláttur á fasteignaskatt til bráðabirgða hjá elli- og örorkulífeyrisþegum og miðað er við tekjur ársins 2019. Þegar álagning 2021 vegna tekna ársins 2020 liggur fyrir í júní/júlí n.k. verður afslátturinn endanlega reiknaður og getur það leitt til inneignar eða skuldar eftir því sem við á. Allar breytingar verða þá kynntar bréflega hverjum og einum. Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt.

Nánari upplýsingar um álagninguna og innheimtu eru veittar á heimasíðu sveitarfélagsins, í síma 455 6000 eða í innheimta@skagafjordur.is.